http://www.makepovertyhistory.org

Monday, November 28, 2005

Klukk

Anna nokkur Kristjánsdóttir læddist aftan að mér og klukkaði mig af miklum krafti. Klukki þessu fylgir sú kvöð að ég þarf að svara löngum og andstyggilegum spurningalista um núverandi hluti í lífi mínu. Hefst þá upptalningin.

núverandi tími: Kvöld
núverandi föt:Borgaralegur klæðnaður
núverandi skap:Viðskotsillur að vanda
núverandi hár: Afskaplega úfið
núverandi pirringur: Jólaskreytingaræði konunnar
núverandi lykt: Vildi að það væri Patchouli en konunni finnst það ekki nægilega jólalegt
hlutur sem þú ættir að vera að gera núna: Skrapa skenk
núverandi skartgripir: Dætur mínar
núverandi áhyggjur: Að jólabarninu í mér hafi verið slátrað á altari peningahyggjunnar
núverandi löngun:RITSKOÐAÐ
núverandi ósk: Sigrún Ósk
núverandi farði: Tekkolía með ljósfilterum frá málningu
núverandi eftirsjá: Dauði jólabarnsins
núverandi vonbrigði:Að hafa tapað lukkutíkallinum mínum í fjárhættuspilakassa Rauða krossins
núverandi skemmtun:Grettis saga Ásmundarsonar
núverandi ást:Fjölskyldan, ullarhúfan mín og vettlingarnir
núverandi staður: Í huganum er ég meðal Indjána í Ecuador
núverandi bíómynd: Var að koma af harry Potter með Heklu
núverandi íþrótt: Á hraðamet í kaffiuppáhellingum að morgni
núverandi tónlist: Konan mín að söngla jólalög
núverandi blótsyrði: Marhnútur
núverandi msn manneskjur:Nota ekki svoleiðis er meira fyrir Lsd
núverandi desktop mynd:Svart
núverandi áætlanir fyrir kvöldið: Lestur, svefn og stanslausar draumfarir fram að morgni
núverandi dót á veggnum: Skíði, skautar, veiðihjól og kuðungar.


Ég ætla að klukka mína yndislegu konu,tengdamóður mína, Gelluna,og Púkastelpuna
|

0 Comments:

Post a Comment

<< Home